Upplýsingar
Senda fyrirspurn
Upplýsingar um Fit Pilates   Prenta  Senda 

 

Stinnur rass J sléttur magi

   

Fit - Pilates leikfimi er í boði víða á Íslandi

Sjá meiri upplýsingar um námskeið og kennaranámskeið o.s.frv á www.fitpilates.is

Fit - Pilates þjálfar djúpvöðva líkamans, gefur langa fallega vöðva, sléttan kvið, grönn læri, sterkt bak, betri líkamsstöðu, aukinn liðleika og samhæfingu.

  1. Skemmtilegar og styrkjandi æfingar sem móta flottar línur líkamans
  2. Enginn hamagangur og læti en virkilega vel tekið á
  3. Æfingar á boltanum veita þægilegt vöðva og líffæranudd
  4. Æfingakerfið sem þú heldur áfram að stunda heima hjá þér og heldur þér í formi
  5. Fit-Pilates leikfimi fyrir þá sem vilja sjá línurnar verða flottari

Innri vöðvastyrkur, jafnvægi og djúp innri vöðvaþjálfun í Fit - Pilates:

Fit - Pilates þjálfar alla kviðvöðva og vöðva miðsvæðis í líkamanum, lærvöðva að innan og utan, mjaðmir og rassvöðva. Þegar þessir vöðvar hafa styrkst er stoðkerfi líkamans komið með meiri stuðning. Þá uppgötvar fólk nýjan og áður óþekktan styrk og jafnvægi sem nýtist vel  í betri líkamsstöðu í daglega lífinu og í öðrum íþróttagreinum. Fólk fær ekki aðeins meiri orku, snerpu og hraða, heldur einnig betri vörn gegn meiðslum vegna fleiri virkra vöðva, betra jafnvægis, meiri liðleika og samhæfingar. Áhugavert fyrir afreks íþróttamenn sem þurfa styrk, liðleika og mýkt.

Allir þátttakendur í Fit-Pilates hvar sem er á Íslandi eru að styrkja gott málefni því hlutfall af þátttöku allra fer til góðgerðarstarfssemi s.s. www.shoe4africa.org


Info Photos Countries Seminars
| Fit Pilates | Smári Jósafatsson | sími 896 2300 | smari@fitpilates.org | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun